Blog Latinum?

Cogito blog scribere Latine incipere. Quid putatis?

Lifi búsáhaldabyltingin!

Síðasta vika hefur verið ótrúleg - enda þarf mikið til að ég skrifi færslu inn á þetta dauðvona blogg. Stemningin og samhugurinn að baki mótmælunum fyrir viku var mikil upplifun og sömuleiðis sú staðreynd að búsáhaldabyltingunni hafi tekist að flæma burt spillta ríkisstjórn sem enginn - hvorki hér né erlendis - virðist skilja hvers vegna var ekki löngu búin að axla ábyrgð og segja af sér.

Nýjir tímar eru fram undan og mér líst vel á fyrirhugaða stjórn Vinstri grænna og Samfylkingar undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur - að því gefnu að Vinstri grænir slaki ekki á í Evrópumálum og standi við skoðun sína um kosningar í byrjun apríl (eða jafnvel fyrr). Einnig er gleðilegt að sjá að Íslendingum sé nú til dags sama um kyn og kynhneigð ráðamanna, enda kemur hvorugt pólitískri hæfni þeirra við.

Ég vona að vinstristjórninni, sem mun vonandi halda velli næstu árin, takist að snúa málum til betri vegar, afmá spillinguna og - síðast en ekki síst - koma á nýju lýðveldi! Það er alveg ljóst að skrifa þarf nýja stjórnarskrá, breyta kosningalögum ásamt ýmsu öðru og stofna nýtt lýðveldi! Fólkið í landinu hefur sýnt fram á mátt sinn og bolað stjórninni burtu og því hvet ég alla til að skrifa undir á http://www.nyttlydveldi.is/ og hafa áhrif meðan stjórnmálamennirnir taka enn mark á okkur!

En breytingar á þingi og í ríkisstjórn eru engin töfralausn. Við sjálf þurfum líka að endurskoða okkar viðhorf, trú og gildismat. Við þyrftum að byggja hagkerfið á raunverulegum verðmætum, landbúnaði, fiskveiðum, íslenskri náttúru og iðnaði (svo lengi sem hann veldur ekki frekari náttúruspjöllum) - raunverulegum verðmætum en ekki gervipeningum. Það hefur löngum þótt slæm hugmynd að byggja þjóðfélag á kaupmennsku líkt og hér hefur verið gert.

Þar sem flott þykir nú til dags að níða niður flest það sem tengist miðöldum (enda nota þeir sem ekkert vita um tímabilið orðið "miðaldir" sem nokkurs konar skammaryrði) langar mig að vitna í athyglisvert textabrot sem ég rakst á í riti miðaldaheimspekingsins Tómasar Aquinasar (1225 - 1274) um stjórnmál og á furðulega vel við nú 750 árum síðar:

Ef borgararnir helga sig viðskiptum verður leiðin greið fyrir marga lesti. Því að þar sem hugur kaupmanna stefnir helst til hagnaðar gerir græðgin vart við sig í hjörtum borgaranna vegna viðskiptanna sem þeir stunda. Þetta leiðir til þess að allt verður falt og gildisfellur jafnframt hvað trú snertir. Leiðin verður greið fyrir svik og pretti og þegar almannahagur er fyrirlitinn þjónar sérhver maður sínum einkahagsmunum. Og fólk hættir að ástunda dyggðina þar sem heiðurinn - verðlaun dyggðarinnar - fellur öllum í skaut. Þess vegna er óumflýjanlegt að borgarlíf slíkrar borgar sé spillt. (De regno II:3; þýðing: Ólafur Haukur Árnason)


Myspace síða

Ég kynni hér með til leiks nýja Myspace síðu, sem Jói setti á laggirnar í gær, fyrir hljómsveitina Hrafnaspark. Um er að ræða tríó sem starfrækt hefur verið síðan árið 2001 og leikur tónlist í anda sígaunans Django Reinhardt. Klarinettuleikarinn Grímur Helgason hefur oft spilað með okkur en hann er nú við nám í Amsterdam. Við höfum leikið víðs vegar um landið og á ýmsum tónlistarhátíðum og höfum gefið út einn geisladisk sem ætti að vera fáanlegur í öllum betri hljómplötuverslunum sem og á vefsíðu útgefanda.

Síðan er ennþá á frumstigi en þó eru komin inn tvö lög til hlustunar, annað þeirra er þingeyska dægurlagið Við gengum tvö eftir Friðrik Jónsson og er tekið upp ásamt Grími Helgasyni á tónleikum síðasta sumar.

Áhugasamir fari á myspace.com/hrafnaspark.


Japanskur snillingur

Fyrir nokkru kynnti vinur minn mig fyrir frábærum tónlistarmanni og ég má til með að kynna hana hér. Stúlkan heitir Hiromi Uehara og er fædd árið 1979 í Japan. Hún náði snemma mikilli leikni í klassískum píanóleik og tók að spila djass 8 ára gömul. Þegar hún var 17 ára kynntist hún Chick Corea fyrir tilviljun í Tókýó og spilaði með honum þar. Í kjölfarið hóf hún nám við Berklee skólann í Boston og síðan þá hefur leiðin stöðugt legið upp á við.

Mér finnst Hiromi þessi bera af í því, hve músíkölsk hún er, og hversu ótrúlega lipurlega og vel hún spilar. Að öðru leyti finnst mér frábært hve plöturnar hennar eru fjölbreyttar - á sömu plötunni má finna allt frá hörðu fusioni til tregafullrar blús- eða fjörugrar ragtime-tónlistar. Ekki spillir svo fyrir að hún er myndarleg ;)

Ég leyfi tveimur YouTube myndböndum að útskýra nánar við hvað ég á. Í hinu fyrra má sjá Hiromi leika lagið Spain með höfundi þess, Chick Corea, og í hinu síðara spilar hún ótrúlega tryllingslegt ragtime lag eftir sjálfa sig sem heitir Tom and Jerry Show (ef þér finnst byrjunin leiðinleg, spólaðu þá á u.þ.b. 01:15 og ég lofa því að þú verður ekki svikin(n)).

 



 
P.S. Mig langar til að þakka Ingólfi Magnússyni og Jóhanni Guðmundssyni fyrir a kynna þess músík fyrir mér.

Högum okkur eins og manneskjur!

Af gefnu tilefni vil ég taka fram að ég vil ekki sjá blótsyrði á vefsvæði mínu. Ég vil einfaldlega að fólk geti lesið þá umræðu, sem hér fer fram, án þess að fá ljótan munnsöfnuð framan í sig. Ætlun mín er að hér fari fram málefnaleg umræða og ég efast ekki um að allir séu sammála því að slík umræða geti farið fram án blótsyrða og bölbæna.

Jón Frímann nokkur kaus að bauna blótsyrðum yfir einn viðmælanda sinn á mínu vefsvæði og faldi ég þar af leiðandi það tiltekna innlegg hans (og bauð honum að senda það inn aftur fúkyrðalaust). Á vefsvæði sínu birti hann svo grein sem ber titilinn Ólafur Haukur Árnason (oha) ritskoðar! og heldur því þar fram að færslu hans hafi verið eytt fyrir það eitt að hann hafi verið ósammála mér. Ef einhver hyggst taka mark á æsingatali Jóns bendi ég viðkomandi á að lesa umrædda athugasemd hans, sem hann birtir í fyrrnefndri færslu sinni - og að því er virðist með nokkru stolti.

Ég vil síður þurfa að fela innlegg og vil framar öðru geta treyst því að þeir, sem koma hér inn, séu sæmilega siðaðar manneskjur og geti rökrætt málefnalega án þess að hreyta blótsyrðum og bölbænum í viðmælendur sína.


Enn um fáfræði og kristna trú

Mig langar til að varpa fram örfáum ábendingum um grein dr. Steindórs J. Erlingssonar, Viðheldur fáfræði kristninni?, sem birtist í Fréttablaðinu þann 16. júlí sl.:

Mér þykir þessi grein alls ekki vera dr. Steindóri til framdráttar sem fræðimanni. Vinnubrögðin og rökstuðningurinn er á þann hátt að ég er hræddur um að grein sem þessi fengi falleinkunn við flesta háskóla. Lítum t.d. á þennan texta:

Í bókinni Lost Christianities: The Battles for Scripture and the Faiths We Never Knew sýnir Ehrman okkur að fyrstu aldirnar eftir dauða Jesú áttu sér stað miklar deilur um hvers eðlis hann var í raun og veru. Þeir sem unnu þessa deilu á fjórðu öld settu saman Nýja testamentið og dæmdu allar aðrar skoðanir sem villutrú og eyddu öllum ritum sem þeim tengdust. „Í kjölfar þessa," segir Ehrman, „sem nokkurs konar náðarhögg, endur­skrifuðu sigurvegararnir söguna af deilunni, og létu líta út fyrir að nánast engar deilur hefðu átt sér stað."

Mér þykir undarlegt að sagnfræðidoktor þurfi einhvern á borð við Ehrmann til að segja sér að "fyrstu aldirnar eftir dauða Jesú hafi átt sér stað miklar deilur um hvers eðlis hann var í raun og veru". Deilurnar um eðli Jesú á 4. öld eru einna áhrifamestu deilur í sögu kristindómsins og teygðust allt fram á 8. öld í Vestur-Evrópu. Svo mikilvægar voru þær að hinar postullegu kirkjudeildir hafa enn í dag yfir í messum Níkeujátninguna, ályktun kirkjuþingsins í Níkeu, þar sem deilurnar voru "útkljáðar" árið 325. Kirkjan hefur aldrei reynt að halda þessum deilum leyndum og um þær má lesa í flestum betri mannkyns- og kirkjusöguritum.

Í kjölfarið nefnir Steindór að Biblíunni hafi verið breytt til að þjóna skoðunum sigurvegara deilnanna og nefnir til dæmis síðustu versin í Markúsarguðspjalli og söguna af syndugu konunni. Þeir sem hafa fyrir því að standa upp úr stólnum og fletta þessum versum upp í Biblíunni ættu að sjá glögglega að (1) þessir textar koma deilunum um eðli Krists ekkert við og (2) þau eru innan hornklofa og tekið er fram að þau vanti í sum handrit. Hvers konar fullyrðing er það, að saka kirkjuna um að leyna slíkum textaviðbótum þegar hún tekur skýrt fram að þau séu ekki í öllum handritum? Reyndar hef ég á tilfinningunni að dr. Steindór hafi ekki haft fyrir því sjálfur að fletta þeim upp og athuga málið sjálfur fyrst hann slær fram svo samhengislausri fullyrðingu.

Ég ákvað þó að kanna textana örlítið betur og fletti þeim upp í gotnesku Biblíunni, en Gotar voru aríanistar, þ.e.a.s. "tapliðið" frá því í deilunum á 4. öld. Söguna af syndugu konunni vantar þar en síðustu versin úr Markúsarguðspjalli eru á sínum stað. Mér finnst því undarleg röksemdarfærsla að halda því fram að sigurvegarar deilnanna hafi á síðari tímum bætt inn versum sem má finna í Biblíu tapliðsins! Er þetta ekki svokallað self-destructing argument?

Steindór lýkur svo máli sínu með því að vitna í tveggja manna tal án þess einu sinni að nefna heimildarmann sinn á nafn. Ég gerist hér með svo djarfur að fullyrða að slík vinnubrögð séu engum til sóma og til þess eins að rýra trúverðugleika fræðimanna. Ég trúi því ekki að hugsandi fólk taki mark á þvílíkum málflutningi!


Hvar verður þú um helgina?



P.S. Á Akureyri.

Á ferð og flugi

Sumarið er búið að vera annasamt hjá mér og ég hef lítinn tíma gefið mér til að skrifa inn á þessa síðu. Læt þó eina færslu flakka hér að gamni til þess að halda blogginu við.

Það er varla að ég hafi náð að vera heila viku í einu í sama landshlutanum í sumar. Aðallega hef ég verið á flakki milli Akureyrar og Reykjavíkur en einnig hef ég gert mér stórskemmtilegar ferðir austur á land, að Skriðuklaustri, í Jökulsárgljúfur, vestur á Strandir og til Grímseyjar svo eitthvað sé nefnt. Veðrið hefur vitanlega verið með eindæmum gott og man ég varla eftir betra sumri á undanförnum árum. Í Grímsey var reyndar leiðindaveður en á Vestfjörðum var þvílík blíða að ég átti í mesta basli með að trúa því miðað við fyrri reynslu af landshlutanum. Fram undan er svo Danmerkurferð og einnig vildi ég geta sótt Skagafjörð heim a.m.k. einu sinni áður en vetrar.

Ég vil vekja athygli á því að hljómsveitin Tortímandinn mun leika fyrir gesti og gangandi niðri á torgi á Akureyri um verslunarmannahelgina. Á föstudagskvöldið verður stuðið í algleymingi en á sunnudaginn verður barnaævintýri flutt af hljómsveitinni með hljóðfæraleik, söngvum og tilheyrandi "effektum". Söngvari/sögumaður er Ævar Þór Benediktsson leiklistarnemi, sem m.a. hefur getið sér gott orð fyrir að stjórna barnaþættinum Vitanum á Rás 1. Hér má sjá nokkuð skemmtilegt myndbrot frá leik Tortímandans 17. júní sl. (hljóð- og myndgæði eru þó með afbrigðum slæm) Hvers vegna ekki að skella sér með fjölskylduna til Akureyrar um verslunarmannahelgina?

Við hæfi er svo að ljúka þessari tilgangslausu færslu með einni mynd að vestan:

 

 


Orðaskipti við fríkirkjuprest

Á þessari síðu eru aðgengileg orðaskipti mín við forstöðumann Fríkirkjunnar í Reykjavík, sr. Hjört Magna Jóhannsson. Þar sem fólk hendir gjarnan blöðum er við hæfi að hafa skrifin aðgengileg á netinu fyrir áhugasama.


- 20. apríl 2007 birtist grein mín, Er Hjörtur Magni marktækur?, í Fréttablaðinu.

- 2. maí birtist svar Hjartar Magna í sama blaði, Hjörtur Magni gerður ómarktækur?

- Í dag, 7. júní, birtist svargrein mín, Er Hjörtur Magni drengur góður? en þar vísa ég í greinargerð mína, Var Eckhart úthýst?, til nánari upplýsinga um Meister Eckhart. Ég vil taka það fram að grein mín birtist ekki í Fréttablaðinu eins og ég skilaði henni inn. Efnisgreinum var skeytt saman og orðalagi breytt. Þó kom það ekki efnislega að sök þótt textinn sé stirðbusalegri fyrir vikið. Hér er því upprunalegi textinn, ögn læsilegri.


Er Hjörtur Magni drengur góður?

(Grein þessi birtist í Fréttablaðinu 7. júní 2007 í örlítið breyttri mynd)


„Drengurinn“ er sæmdarheitið sem ég fæ að njóta þegar fríkirkjupresturinn Hjörtur Magni leitast við að svara gagnrýni minni í Fréttablaðinu 2. maí sl. Þótt Hjörtur reifi þar vandlega ófagrar og óviðkomandi skoðanir sínar á Kaþólsku kirkjunni reynir hann einungis að svara tveimur atriðum úr grein minni sem birtist 20. apríl, en þar gagnrýndi ég hann fyrir að beita ósannindum þegar hann ræðst gegn öðrum.

Ég gagnrýndi Hjört m.a. fyrir að tönnlast á þessum ósannindum: „Það er ekki svo ýkja langt síðan að kirkjustofnunin refsaði grimmilega öllum þeim sem drógu það í efa að jörðin væri flöt.“ Því svarar hann með tilvitnunum í Gamla testamentið sem skrifaðar voru löngu fyrir daga kirkjunnar auk þess sem hann fiskaði upp kristinn rithöfund frá 4. öld, Lactantíus, sem taldi að jörðin væri flöt. Skrif hans voru þó alltaf umdeild og þetta einstaka dæmi breytir því ekki að hugmyndin um hnöttótta jörð var alla tíð ríkjandi innan kirkjunnar. Ekki var nokkrum manni heldur refsað fyrir að hafa skoðun á lögun jarðarinnar.

Einnig gagnrýndi ég fráleitar fullyrðingar prestsins um að kirkjan hefði „úthýst dulúð og mystík“. Hann svarar með skætingi um dulspekinginn Meister Eckhart, sem aldrei var úthýst af kirkjunni. Að vísu reit Jóhannes XXII páfi í Avignon bréf þar sem 17 málsgreinar Eckharts voru úrskurðaðar trúvilla, en það var ekki fyrr en að honum látnum (Hjörtur kallar Jóhannes ranglega „páfa í Róm“; Nikulás V sat í Róm um þetta leyti). Ekki var heldur staðið sem skyldi að útgáfu bréfsins og kenningar Eckharts hafa æ síðan verið áhrifamiklar innan kirkjunnar. Greinargerð um málið er á vefsíðunni oha.blog.is.

Rúmri viku eftir að grein mín birtist hringdi Hjörtur Magni í mig og heimtaði upplýsingar um trúarskoðanir mínar og persónulega hagi. Í það símtal vitnar hann í grein sinni og leggur mér þar í munn orð sem aldrei hrutu af mínum vörum! Leitt þykir mér að sjá mann, sem á að starfa í umboði Krists, „höndla sannleikann“ á þennan hátt og ég skora á hann að gera símtalið opinbert ef hann á það hljóðritað!

Þótt fríkirkjupresturinn uppnefni mig sífellt „kaþólska drenginn“ vil ég benda á að ábendingar mínar væru sannar hvort sem þær hefðu komið frá kaþólskum, lútherskum eða trúlausum manni. Að efast um trúverðugleika fólks vegna trúarskoðana hæfir varla siðuðum manni og mér finnst óviðeigandi að hempuklæddur maður skuli í rökþroti sínu reyna að höfða til slíkra fordóma. Ekki er svo úr vegi að minna prestinn á að fyrir 136 árum sté kaþólskur drengur norðan frá Akureyri inn í Frúarkirkjuna í Amiens og að aldrei á langri ævi tók hann sér í munn neitt í líkingu við það sem forstöðumaður Fríkirkjunnar hefur látið frá sér fara upp á síðkastið.

Að lokum vil ég leiðrétta þá fásinnu að ég skrifi undir „dularmerkjum kaþólskrar trúar“. Ég gagnrýndi Hjört Magna undir merkjum heilbrigðrar skynsemi og ef hann getur ekki svarað á sama grundvelli sé ég ekki ástæðu til að eiga við hann frekari orðaskipti.


Fyrri grein mína og tengil í svar Hjartar má finna á vefsíðunni oha.blog.is.


Ólafur Haukur Árnason

Höfundur lauk í vor öðru ári í sagnfræði og latínu við Háskóla Íslands.


Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Haukur Árnason

Höfundur

Ólafur Haukur Árnason
Ólafur Haukur Árnason
Höfundur er tónlistarkennari.
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • ...668891_6277

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 10896

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband